miðvikudagur, apríl 27, 2005

aftur út að hlaupa...

júbb, ég fór aftur út að hlaupa í gær... finn fyrir svaka commitment hérna... keypti mér meirað segja nýja skó fyrir fullt af pening... hlaupaskó!!! hef ekki gert það í mörg ár... er farin að finna fyrir dulitlum harðsperrum... kemur alls ekki að sök :) og ég er á leið heim úr skolen til að hlaupa meira :)

held ég sé komin að niðurstöðu með fjórðungsaldar afmælið... held ég haldi það bara helgina eftir... þ.e. 24 eða 25 júní... held ég hreinlega meiki ekki að djamma massívt þann 18. verð örugglega á hausnum þar... en ætla mér samt að kíkja í garðpartýið á skaganum... það yrði soldið mikið að ætla að koma heim 14, byrjað vinna 15, vinna mega mikið á 17 og halda svo ærlegt partý 18... veit ekki alveg... en ég held það verði nú enginn ósáttur við þetta fyrirkomulag... ég get þá líka eytt peningunum sem ég vinn mér inn á 17 í ammælið!!! um að gera að hafa nóg að drekka og hver veit nema éta bara líka :)

við erum með 3 laus herbergi í íbúðinni í sumar!!! og ekki bara í sumar því mikael er að flytja út og því eitt herbergi laust til leigu í lengri tíma ef einhver vill!!! þannig að ef þið vitið um einhvern sem langar að kíkja til köben í sumar og vinna eða eitthvað þá er um að gera að láta vita af þessum herbergjum... koma svo!!! AUGLÝSA!!! þurfum endilega að ná þessu í leigu... erum 2 sem verðum að borga leigu heima líka í sumar... væri asskoti fínt ef maður þyrfti ekki að borga fyrir bæði herbergin...

AUGLÝSA...AUGLÝSA...AUGLÝSA...AUGLÝSA...AUGLÝSA...AUGLÝSA...AUGLÝSA

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég sá inn á auglýsingasíðu barnalands í gær að það var einhver að auglýsa eftir íbúð í köben í sumar..... Finn ekki auglýsinguna núna en það sakar ekki að fylgjast með þar ef hún kemur aftur.....
Hjördís G.