föstudagur, október 21, 2005

meiktíminn...

meiktíminn er heldur betur kominn í köben... skítakuldi búinn að vera síðustu daga og massa rigning núna... held reyndar að þetta sé ekkert á við það sem var á fróni um daginn... fer niður í held ca. 8 gráður hér... en nógu andskoti kalt samt!!! shit hvað janúar og febrúar verða erfiðir...
.
annars er ég búin að vera þvílíkt þæga stelpan... ekkert djamm síðustu helgi... bara læralæra... og sama þessa helgi og næstu... frekar niðurdrepandi sko... en við fengum ekki að fresta prófinu... og þurfum því að fara í eitt 31.okt og annað 1.nóv og skila skýrslunni 4.nóv... meiri vitleysan! var víst ekki hægt að breyta þessu því 4ja önn er líka að taka próf... mín skrifaði kvörtunarbréf á kennarann og á síðan eftir að fara með þetta allt saman lengra :) eins og mér einni er lagið...
.
fór og kíkti á loft þeirra ástu og arnar á þriðjudag... hann er voða stór og gerir víst hreinlega ekkert annað en að éta og sofa... heyrist víst bara ekkert í honum... var reyndar sofandi þegar ég kom, vaknaði og fékk að eta, og sofnaði svo í fanginu á múttu sinni... náði ekki einu sinni að máta... geri það bara næst :)
.
meiri lærdómur... must að klára þetta helvíti fyrir mánudaginn en ég ætla samt að leyfa mér að sofa út á morgun... hlakka til!!! man, hvað ég á óspennandi líf þessa dagana... en góðu fréttirnar eru að ég kem heim 11.nóv :)

fimmtudagur, október 13, 2005

allt að verða vitlaust...

júbb, allt að verða vitlaust á þessum bænum... sem er svo sem allt í lagi og bara fínt miðað við slökunina í síðustu viku :) pétur kom og ég hreinlega tók mér frí frá skóla alla vikuna... ekki planað alla dagana... stundum bara sefur maður :) vorum í því að slaka á bara og rölta um köben... og sötra öl :) massívt næs...
.
svo síðasta fös þá komu mæja og vala á sortedam... maja á leið á árshátíð VR og vala í heimsókn til ástmannsins... kíktum eilítið á lífið á fös og soldið líka á laug... mjög fín helgi sem endaði með bubba tónleikum :) og eftir það fórum við í leiðangur að finna opinn veitingastað og viti menn... fundum einn grískan sem var nú bara helvíti fínn :) vorum ein þarna inni... 8 saman og þvílíkt fjör... endalaust af skrautlegum og mega fyndnum sögum sem fengu að fjúka þar...
.
annars er lítið að frétta þannig... brjálað að gera í skólanum (er það furða eftir viku frí... ) er að fara í próf 31.okt og svo vilja þeir endilega skella mér í annað 1.nóv... próf fyrir þær 3 vikur sem ég tók mér í frí í byrjun annar... er að vinna í því að fá að fresta því prófi... sem betur fer fæ ég yfirleitt allt sem ég vil :) og ég skal fá það í þetta skipti... þurfum nebblega líka að skila massa skýrslu í byrjum nóv um manchester... er ekki alveg að sjá þetta allt gerast á sama tíma... nú, og ef ég fæ ekki það sem ég vil (næstum fyrsta skipti á ævinni) þá er það svefnpokinn upp í skóla...
.
en nóvember er ekki allur leiðinlegur....neineinei... mútta ætlar að leggja land undir fót og kíkja á stelpurnar sínar :) held hún sakni okkar soldið :) og svo er ég að spá í að koma heim ca.12 þess mánaðar... kemur betur í ljós þegar ég er búin að fá breytinguna á prófinu í gegn... i'll keep you informed :)
.
jæja, er þvílíkt að gera allt annað en að læra... verð að fara að snúa mér að því pronto! nýjar myndir komnar á síðuna...

þriðjudagur, október 11, 2005

nýtt barn

...til hamingju til ástu og arnars...
.
gutti kom í heiminn í hádeginu... 18 merkur og 55 cm
.
???ætli hann eigi að heita loftur???