föstudagur, september 30, 2005

evaluation búið...

helvítis ruglið búið!!! evaluationið það er... meiri vitleysan... held að allur bekkurinn hafi fengið feed back uppá "you're way behind"... hvað er það??? er alveg sammála að vísu og vissi það alveg... er búin að vera í þessu nógu lengi til að vita ef ég er eftirá eða ekki... svo var þetta líka bara allt í ruglinu... kennarar að skamma mann fyrir að hafa ekki ákveðnar uppl. á meðan það stóð í verkefninu að maður þyrfti ekki að hafa þær!!! þoli ei svona skipulagsleysi... allir brjálaðir og það fyrsta sem verður gert eftir helgi er að bóka fund með okkar "elskulega" umsjónarkennara með meiru...

annars vorum við ekkert eftirá þannig... ekkert meira en aðrir!!!

var mega þreytt í dag... var ekki að vinna að verkefninu í nótt... ónei! varð andvaka vegna elskulegu sambýlinga minna :) en þeir skemmtu sér vel og það er fyrir öllu... og ekki vill maður nú fara að kvarta... gæti vel komið að því að ég bjóði fólki heim á fim og djammi fram undir morgun :)

pétur kom líka í gær og ætlar að vera í einhverja 10 daga... tókum röltið um köben í dag og vorum meira og minna í því að skoða byggingar :) soldið annað en að fá gellur í heimsókn :) ekkert búðarráp á þessum bænum... en þetta var mjög fínt... soldið langt síðan maður hefur actually horft í kringum sig hérna... þetta er allt fram hjá manni eftir að hafa hjólað fram hjá þessu einu sinni...

annars þykist ég vera að reyna að sötra bjór as we speak... varð bara hálffull á öðrum bjór!!! vegna þreytu... og er meira að segja orðin massívt rauð í framan :) eitthvað sem gerist yfirleitt ekki þegar ég er að drekka... enda er ég ekki búin að sofa í nema ca. 2 tíma... er samt komin á 4ja bjór :) sjáum hvað maður endist...

morgundagurinn hefur ekkert annað í för með sér nema sofa... pétur á leið út úr bænum með vini sínum og shit hvað ég ætla ekki að hreyfa á mér rassgatið allan tímann!!! eða jú... ætla að fara og kaupa ammælisgjöf handa hlín sem á ammæli í dag en það er nú bara út á næsta horn :) fer bara í náttfötunum... veit að nágrannar mínir og aðrir kaupmannahafnarbúar elska að sjá mig þess útlítandi....

mánudagur, september 26, 2005

manchester...

mánudagur.. druslan er þreytt eftir helgina... ferðasagan mikla :)

lentum í manchester um 8 leytið á fim morgun... þurftum að labba helminginn af flugvöllinum til að komast í lest... samkvæmt skipulagi voru 2 úr bekknum í "ferðanefnd" og voru þar af leiðandi búnir að finna þá lest er við áttum að taka... en neibb... kennarinn okkar er mjög spes og ákvað að við skyldum fara á aðalstöðina... héldum flest að hann væri nú með þetta á hreinu en á daginn kom að það var nú aldeilis ekki svo... tókum strætó frá lestarstöðinni er í inn í borgina var loksins komið og nú batnar það ekki... fórum að sjálfsögðu út á vitlausum stað eftir ákvörðun "ferðanefndarmanna" og enduðum á því að þurfa að labba um 2 km til að komast á hostelið... sem var kl 11...
hostelið ágætt svo sem... kannski ekki alveg það sem mar bjóst við fyrir peninginn... en ok :) áttum að mæta á lóðina okkar kl 11...(sem við erum í þykjustunni að hanna hús á) og hitta kennarann... frestuðum því til 1 því enginn var búinn að éta neitt síðan daginn áður... vorum jú með lággjaldaflugfélagi... þau bjóða ekki uppá neitt í litlu, þröngu vélinni... jæja, komumst á áfangastað um 1 leytið og löbbuðum meira í átt að lóðinni og kíktum á smá hverfi í leiðinni... fullt af flottum húsum þarna... massa fínt að sjá þetta sona með eigin augum en ekki bara á google earth :) svæðið er rétt hjá old trafford svo við vorum 5 sem ákváðum að reyna að fá miða á laug leikinn - man u-blackburn - sem og við fengum en þurftum að labba soldið til að ná í hann... og labba til baka... vorum frekar búin á því þegar á hostelið var aftur komið en mar henti sér í sturtu og nett spariföt fyrir dinnerinn það kvöld... og svo var labbað af stað í háu hælunum :) og frekar erfitt að finna stað fyrir sona mikið af fólki... og sérstaklega þegar hluti af honum á litla peninga... en þetta var voða skemmtilegt kvöld... allir komnir í bólið kl 12 þar sem pöbbinn náttlega lokar kl 11...

fös lögðum við í hann kl 8 á leið í verksmiðjuna... komin þangað um 10:30... svaf alla leiðina :) verksmiðjan var huge... sáum aðeins hluta af henni en helvíti merkilegt allt saman... svo var okkur boðið í hádegismat og fyrirlestur eftir það... mjög fróðlegt þótt allir hafi verið við það að sofna :) og svo vorum við leyst út með fullt af dóti frá kingspan... komin í bæinn um 6:30... hópurinn splittaðist upp í litla hópa og allir í sparifötin aftur og út að borða... ég, gunni, ausra og vicki fórum á grískan stað og fengum okkur þessa líka dýrindissteik!!! mmmmm.... þá varð druslan ánægð :) svo fórum við að hitta liðið á einhverjum pöbbnum og löbbuðum svo að hitta enn fleiri og reyna að finna stað fyrir alla... sem er að sjálfsögðu ekki hægt með 20 manna hóp... aðeins rölt um en sættumst á einhvern kjallara club - opinn til 2... allir komnir í bólið um 3 :)

leikurinn á laug... þvílík upplifun!!! þetta var magnað... fengum rosa fín sæti - í efri stúku fyrir aftan mar í fremstu röð... og blackburn fans beint fyrir neðan okkur... allt að verða vitlaust á tímabili :) en þetta var mega gaman... pizza hut á eftir og svo á hostelið enn og aftur í spariföt rölt með restinni af liðinu á bar... svo club eftir á... gott kvöld og komin aftur í bólið um 3 :)

þynnka á sun... þurftum að tékka okkur út fyrir 10 um morguninn... sem var mjög erfitt! sátum eins og lummur í ca 2 klst... og svo fórum við gunni að reyna að versla... sem var líka mjög erfitt... með töskurnar í eftirdragi... en að sjálfsögðu gat ég keypt mér eitthvað :) eitt par skór og peysa :) manni líður nú vel eftir það... lestin á völlinn... ekki eins mikið vesen í þetta skiptið... og komin til köben um 22... beint í bólið um leið og mar kom heim og strax í skólann í morgun... massívt mikið að gera... elevation (mat) á fös... og held enginn í bekknum búinn með neitt... sem er svo sem allt í lagi... þá eru bara allir equally fucked :)

annars er ég búin að komast að því að "fish & chips" er ekki hollt fyrir neinn... sérstaklega ekki breskar stelpur... þær fá "fish & chips" rass og brjóst... og virðast fitna lítið annars staðar... eru með spes breskt vaxtarlag...sona soldið eins og sumir í bandaríkjunum eru með "burger ass"... allt öðruvísi en heima eða hér... ekki eins mikið um "pepsi vængi" eða "lowrider"... held alveg örugglega að það sé "fish & chips" að kenna... það er alla vega my theory...

föstudagur, september 16, 2005

allt í goody

blogga segiði... það hefur nú ekki svo mikið verið um að vera hérna skal ég segja ykkur... búin að skrópa ansi mikið í skólanum :/ sem er ekki nógu gott en sem betur fer þá hefur það nú engin áhrif :) önnin búin að fara rosalega hægt af stað... einum of hægt... það var náttlega allt í rugli ennþá þegar ég kom... eftir flutningana... fólk farið að tala um að fresta prófinu sem á að vera núna í lok sept um eina viku... ekki séns!!! það er líka bara rugl... bara klára þetta helvíti :)

sjöbba bara flutt heim aftur... fór í gær en hlín verður áfram hjá okkur :) svo fer bara að styttast í að ég fari til manchester :) í stífa dagskrá bara... en það verður massa gaman samt... skoða arkitektúr og verksmiðjuna og sona... og smá djamm :)

annars er hreinlega ekki mikið annað að frétta... sem er nú soldið skrýtið miðað við sama tíma í fyrra... allt í gangi þá mar! en ég reyni að vera dugleg að koma með þetta þegar eitthvað gerist... og verða duglegri að mæta í skólann :)

er einhver sem þekkir tiltölulega nýútskrifaðan arkitekt sem er að vinna heima???

miðvikudagur, september 07, 2005

ferlega fínt...

hello again!
.
búið að vera barasta ferlega fínt síðan ég kom... finnst reyndar soldið mikill hiti hérna en þá er bara að klæða sig lítið...hehe! Sjöbba og Hlín fluttu inn á fös... voru soldið búnar á því en joinuðu samt í öl... með mér, Jóni Gunnari, Elísabetu og Dóra... svo fóru þær nú bara að sofa á meðan við skelltum okkur út á lífið... rólega samt :)
.
á laug grilluðum við svo... átti slatti af liði að koma í mat en allir afboðuðu sig!!! hvað er það... held það hafi bara orðið betri matur fyrir vikið :) svo kíkti Gunni, Siggi og Aníta á okkur og sötruðu öl... og aftur skelltum við okkur út á lífið! ferlega gaman... enduðum á Stengade og hittum Hrefnu, Maríu, Öglu, Hauk, Stimma og Helga Pál... og allt endaði í trylltum dansi á hinu fræga gólfi í eigu Stengade :) og að sjálfsögðu mygla daginn eftir þó lítið sem ekkert hafi verið um þynnku :)
.
stelpurnar búnar að koma sér ferlega vel fyrir... fórum í Ikea og keyptum slatta af drasli... ég skellti mér í húsmæðraskóna og skipulagði heilan helling... keypti kassa, krukkur og körfur... var orðin hálfsmeyk við sjálfa mig... var eins og ég væri í einhverju "nesting" fílíng... eitthvað voða mikið að búa mér til gott og fallegt heimili... þannig ég endaði daginn bara á öli :) og þá hætti ég líka...
.
drullaði mér loksins í skólann í gær... og mætti líka í dag :) er með fínan hóp sem er meira til í að bara drífa hlutina af og taka sér frí í staðinn fyrir að hanga allan daginn... sem er massa fínt fyrir svefnpurkuna mig :)
.
setti inn myndir af helginni... tékk it out...