miðvikudagur, september 07, 2005

ferlega fínt...

hello again!
.
búið að vera barasta ferlega fínt síðan ég kom... finnst reyndar soldið mikill hiti hérna en þá er bara að klæða sig lítið...hehe! Sjöbba og Hlín fluttu inn á fös... voru soldið búnar á því en joinuðu samt í öl... með mér, Jóni Gunnari, Elísabetu og Dóra... svo fóru þær nú bara að sofa á meðan við skelltum okkur út á lífið... rólega samt :)
.
á laug grilluðum við svo... átti slatti af liði að koma í mat en allir afboðuðu sig!!! hvað er það... held það hafi bara orðið betri matur fyrir vikið :) svo kíkti Gunni, Siggi og Aníta á okkur og sötruðu öl... og aftur skelltum við okkur út á lífið! ferlega gaman... enduðum á Stengade og hittum Hrefnu, Maríu, Öglu, Hauk, Stimma og Helga Pál... og allt endaði í trylltum dansi á hinu fræga gólfi í eigu Stengade :) og að sjálfsögðu mygla daginn eftir þó lítið sem ekkert hafi verið um þynnku :)
.
stelpurnar búnar að koma sér ferlega vel fyrir... fórum í Ikea og keyptum slatta af drasli... ég skellti mér í húsmæðraskóna og skipulagði heilan helling... keypti kassa, krukkur og körfur... var orðin hálfsmeyk við sjálfa mig... var eins og ég væri í einhverju "nesting" fílíng... eitthvað voða mikið að búa mér til gott og fallegt heimili... þannig ég endaði daginn bara á öli :) og þá hætti ég líka...
.
drullaði mér loksins í skólann í gær... og mætti líka í dag :) er með fínan hóp sem er meira til í að bara drífa hlutina af og taka sér frí í staðinn fyrir að hanga allan daginn... sem er massa fínt fyrir svefnpurkuna mig :)
.
setti inn myndir af helginni... tékk it out...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvernig er það á ekkert að fara koma með nýjar fréttir?????

Hjördís