mánudagur, mars 21, 2005

heimþrá...

er með netta heimþrá... samt ekki í þeim skilningi að mig langi eitthvað sérstaklega heim til mín eða sakna liðsins, heldur meira í áttina að sakna gamla lífsins... þið vitið, þetta stabíla sem maður var kominn í og með einhvern veginn allt á hreinu... ég sakna soldið að eiga pening, gera nákvæmlega það sem mér sýninst við þá, fá lánaðann bíl, geta treyst á að mamma kaupi handa mér coke, geta sofnað í sófanum á kvöldin án þess að hrökkva upp við hvert einasta hljóð, horfa á íslenskt sjónvarp, matur frá þeim gömlu, vita hvert maður á að snúa sér ef eitthvað kemur uppá, geta rifið kjaft... það er soldið erfitt á dönsku, geta ruglað í afgreiðslufólki... það er líka erfitt á dönsku, hreinlega að þurfa ekki að díla við vesen!!! þurfa ekki að vera stöðugt að pæla í skólanum og samskiptum við liðið þar!!!

það er sona, stundum líður manni þannig... ekkert alvarlegt samt :) hef nú alveg liðið sona áður og það er líka frábært að vita til þess að ég kem heim eftir minna en 2 vikur :) magnað að hitta fólk sem maður hefur þekkt í lengri tíma...

helgin var massa fín... strákarnir tóku vel á því og ég held að þeir hafi nú bara skemmt sér vel :) vona það... þeir djömmuðu alla helgina en ég kíkti út á fim með liði úr skólanum, svo var ég róleg á fös!!! merkilegt nokk... en á laug buðum við einhverju liði hingað og héldum lítið en góðmennt partý :) algjör snilld... strákarnir voru með hægri handar regluna alla helgina sem þýðir að það er bannað að drekka með hægri!!! ef maður slysast til þess verður maður að klára drykkinn sem maður er með í hönd... soldið erfitt til að byrja með en ég held að ég drekki aldrei aftur með hægri!!! hehe, annars var ónefndur aðili í partýinu sem gleymdi sér soltið oft og þurfti að þamba 3 fulla bjóra!!! og endaði með því að æla út allt svefnherbergisgólfið hjá mér!!! hehe, viðbjóður... ég bara mega cool á því og þreif allt saman án þess að kúgast :) svo fór ég bara út á djammið og skildi viðkomandi eftir...hehe! mæli samt eindregið með þessum leik... mega snilld!!! tökum þetta þegar ég kem til landsins :) hver ætlar annars að halda partý???

hlakka til að koma heim... mega vinna framundan í skólanum, ekkert páskafrí á þessum bænum... verð uppí skóla alla páskana :( en ljósið er þarna... fékk nebblega páskaegg frá þuríði... takk honey :)

nú ætla ég að reyna að sofa úr mér þessa vitleysis heimþrá...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað var þessi ungi herramaður að gera í þínu svefnherbergi?? var sem sagt eitthvað að gerast þarna af viti??;)

iris

Embla Kristjánsdóttir sagði...

haha, enginn ungur herramaður þarna á ferð... heldur dama sem var stödd í partýinu og vill ei láta nafn síns getið... hefði heldur ekki vilja herramann sem ælir yfir allt... :)

Nafnlaus sagði...

já get your drunken ass over here og þá fer þessi netta heimþrá! haha!