mánudagur, nóvember 19, 2007

stór og góður dagur :)


vá, fullt að gerast í dag...
.
fékk einkunn fyrir BS ritgerðina í dag... skrifaði um íslenska byggingasögu og fékk að sögn leiðbeinandanum mínum "stóra" 10!!! hann var alveg á mörkunum að hækka upp í 12 þegar ég var að spjalla við hann en ég gleymdi víst veigamiklu atriði í innganginum: skrifaði ekki af hverju ég valdi þetta efni... þannig að 10 varð að "stórri" 10 :) held það sé um 9 og hálfur á klakanum...
.
svo fékk ég vinnu í dag... hjá Fjarhitun :) á reyndar eftir að semja um launin en fer í það á næstu dögum og krosslegg fingur og vona að ég fái það sem ég bið um... allavega mjög nálægt því! veit ekki alveg hvað ég geri annars...
.
svo talaði ég við litla bróður í dag... og hann og Helga Björg voru að trúlofa sig í gær!!! til hamingju þau!!! þvílík hamingja á öllum bæjum í dag sko...

skötuhjúin

.
já, sko stór og góður dagur í dag :) búin með 1/3 af önninni og ekki amaleg einkun þar :)
.
nú er bara að drullast til að halda áfram...

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju,
til hamingju og til hamingju ;)

Hlakka ógsslega til að fá þig heim elskan xxx

Kv. Þuríður

Nafnlaus sagði...

Vá til hamingju!! Geggjað hjá þér stelpa:) Og til hamingju með brósa litla;)

Kv.Íris Dögg

Embla Kristjánsdóttir sagði...

takk stúlkur mínar :) immit "brósa litla"... ég er orðin eina af systkinum mínum á lausu!!! what is up hérna... hehe

Nafnlaus sagði...

Við finnum kall fyrir þig um jólin og við trúlofum ykkur.......ekki málið EMbla mín....

´Trána

Embla Kristjánsdóttir sagði...

HAHAHA! svo ekki það sem mig langar! þarf að hafa fyrir sjálfri mér og halda áfram að eignast meiri pening! fyrir MIG! hef ekkert að gera við annan aðila í þessu stússi :)

Nafnlaus sagði...

hæ old rúmí gaman að sjá þig á bloggsinu :) til lukku með árangurinn af önninni!:)