þriðjudagur, desember 06, 2005

blekuð???

er EKKI búin að koma mér í "sofa kl 22 og vakna kl 7" pakkann... ekki gott sko... hef sama og ekkert gert í skólanum síðan ég kom aftur og nú þarf ég sko heldur betur spark í rassgatið!!! er búin að setja mér deadline á þriðjudag svo ég geri nú eitthvað... nenni hreinlega ekki neinu... er bara í því að skipuleggja jólagjafir og versla mér föt :) það er nú samt aldrei leiðinlegt...
.
fór á julefrokost á laugardaginn með bekknum mínum... var ansi hrædd um að þetta yrði ekkert alltof gaman... en mar á aldrei að dæma fyrirfram :) var bara þetta roknastuð og endaði helvíti vel í því eftir nokkra snapsa við matarborðið :) samt voða þæg og var komin heim um 4... en get ei neitað því að það var bömmer á sunnudeginum... bömmer yfir að hafa orðið full... hvað er það??? held barasta að ég sé með einhverja complexa gagnvart bekknum mínum... þarf að finna út úr því hið allra fyrsta... nenni ek að vera með complexa gagnvart fólki sem ég á eftir að hanga 2 ár í skóla með...
.
var að henda inn myndum... bæði frá íslandi og frá julefrokost... check it out :)

Engin ummæli: