þriðjudagur, október 30, 2007

bloggleysi...

var að fá kvörtun yfir bloggleysi bæjarins... smá innskot til að reyna að bæta úr því :)

búin að skila ritgerðinni... fæ út úr því í viku 47 (allt í vikum hér sko...) hef ekki verið dugleg síðan ég skilaði og er því að renna á rassgatið með stóra útskriftarverkefnið hérna... sé fram á vökunætur næstu ca. 6 vikurnar!!! sona er að drulla sér ekki í gírinn...

er í því þessa dagana að sækja um vinnur með náminu því ég sé fram á að verða gjaldþrota ef ég fæ ekki meiri pening... helvítis LÍN!!! er að vona að ég fái vinnu uppá ca. 15 tíma á viku og með því vona ég líka að ég verði örlítið skipulagðari... virkar oft þannig sko... því meira sem mar hefur að gera því meira kemur mar í verk :)

djammið alltaf á sínum stað... þó búið að minnka það samfara peningaleysi og er því einungis djammað hér einu sinni í viku (einungis já!)... lítið að frétta þaðan utan að ég hitti gaur fyrir um 2 vikum sem bauð mér á deit og ég fór! rosa gaman, var reyndar soldið stressuð um að ég myndi ekki þekkja hann aftur því ég mundi ekki alveg hvernig hann leit út... mundi samt að það var rosa gaman að tala við hann og mundi alveg eftir að hafa gefið honum númerið mitt!!! en ég skellti mér og þekkti hann um leið og hann kom :) rosa gaman á deitinu... massa fínt að tala við hann en ég komst að því að hann er færeyingur og bara 22 ára!!! enginn neisti þar sko... svo fékk ég sms um helgina þar sem hann spurði hvort ég vildi hitta hann aftur og ég svaraði bara: held því miður ekki... :P best að vera hreinskilin ekki satt???

annars gengur allt í haginn, öllum kemur vel saman á heimilinu og við erum orðin þvílíkt dugleg að elda alltaf heima og spara saman :) mjöööög ánægð með það :)

framhaldið: fara út að hlaupa, elda áfram heima, spara og drullast til að klára verkefnið!!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ohhh kannast við þetta peningaleysi!! mér langar að fara að grenja sko! ojj... en ég elska samt peninga, þeir eru góðir ( segir secret ekki að maður eigi að hugsa jákvætt þá koma þeir..hummm).. knús til þín :*

Nafnlaus sagði...

Með hverjum býrðu mín kæra? Er öll forvitin..:P

Kv.Íris Dögg