föstudagur, mars 30, 2007

loksins...

jú, stóru fréttirnar loksins komnar í höfn!!! mikið var...

staðan er þannig í dag að ég er orðin íbúðareigandi í annað sinn! og alls ekki amaleg eignin það... samtalst um 200m2 á Gunnarsbraut í Norðurmýrinni :)
ferlið að ná í peninga fyrir þessu er búið að taka soldið lengri tíma en ég hélt en í dag var skrifað undir svo ég er sum sé orðin eigandi að fullt af fermetrum fyrir fullt af peningum!
við tekur svo "renovation" eða endurnýjun húsnæðisins því mér er sagt að það líti ekkert alltof vel út... jú, mér er sagt! hef nebblega aldrei séð þetta :) ekki einu sinni á myndum!

ég er augljóslega búin að missa það hérna! en ég er samt miklu meira spennt fyrir verkefninu framundan :) þetta verður held ég nákvæmlega það sem mig hefur lengi langað... kaupa íbúð í niðurníslu og gera hana upp sjálf :)

er að vísu ekki alveg ein í þessu... upprunalega er þetta hugmynd föður míns svo hann verður með mér í þessu verkefni :)

annars er að frétta frá köben að ég er búin að hafa það svaka gott... í mega tjilli, fullt af öl og fullt af góðu fólki :) skólinn fékk að sjálfsögðu að kenna á því... var að klára lokapróf sjöttu annar í dag og rétt skreið...

en hey, held mar megi skríða einu sinni á þessarri blessuðu skólagöngu... er það ekki???

framundan... djamm um helgina, UK að heimsækja Finna á sun, Ísland á föstudaginn langa og djamm þá helgi... svo beint að vinna og ná sér í pening fyrir þessu fasteignabraski :)

annars er ég að hugsa um að lofa því að verða duglegri að blogga svona fyrst ég er komin á gamlar slóðir :) fylgist því spennt með...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vá til hammó með nýju íbúðina elskan mín:) frábært hjá þér, einmitt eitthvað sem hentar þér... brask! hehe

hlakka til að knúsa þig þegar þú kemur heim...:*

Nafnlaus sagði...

Til hamingju mæ dear... ég býð hér með fram hjálp mína í dúttleríi við pleisið ef þú þarft á að halda:)

Nafnlaus sagði...

Til hammó með þetta Embla mín:*

Bestu kveðjur
Íris á Congo

Nafnlaus sagði...

Búhúú er sko ekkert að digga það að þú sér farinn þarna pjallan þín. Er alltaf að uppgvöta fleira og fleira og fleira fólk sem fer að fara héðan. Össs ekki mér að skapi sko ;) En vona að Nottingham hafi vera mega bömbu svöl og að nýja húsið þitt sé það líka hehe.

Luv from DK

P.S farðu nú að vippa inn öllum myndunum sem þú átt eftir að setja inn ;)

Nafnlaus sagði...

UPS ef þú skyldir ekki fatta hver var að skrifa hérna fyrir ofan þá var það krakkinn í G-713 ;)